Ólafur Gunnarsson Þeir vissu að þeir yrðu einhverjum söguefni, þessir þremenningar sem voru vandræðabörn á atómöld, bóhemar sem hneyksluðu og hrifu; gæfuleysið féll þeim að síðum, þeir lifðu átakamiklu lífi innra með sér og hið ytra – og reyndu að láta penna og pensil ljúga úr sér hrollinn. Ólafur Gunnarsson rithöfundur var góðvinur listamannanna Alfreðs Flóka, Dags Sigurðarsonar og Steinars Sigurjónssonar, umdeildra snillinga sem ólu aldur sinn á jaðri samfélagsins. Hann fer hér í sannkallaðan gúmsílúms-túr – eins og Flóki hefði sagt – um Reykjavík og Kaupmannahöfn áttunda og níunda áratugarins og lýsir af næmum skilningi, hreinskilni og óborganlegum húmor kynnum sínum af þeim og fjölmörgum öðrum ógleymanlegum persónum af því sögusviði: menningarpáfum, sveitamönnum, heimsfrægum rithöfundum, húsgagnasölum, barþjónum, mögulegum KGB-mönnum, ástkonum, skáldum og listamönnum.
Genres:
204 Pages