Strandanornir: Galdrasaga af Ströndum
Kristín Helga Gunnarsdóttir Spennandi saga um galdra og draugagang eftir margverðlaunaðan metsöluhöfund. Í árlegri veislu Kolfríðar fyrir framliðna ættingja birtist óboðinn gestur – ófrýnileg skotta sem skelfir bæði hana og barnabörnin þrjú: Úrsúlu og Messíönu, tíu og tólf ára upprennandi nornir, og Valentínus stóra bróður þeirra. Til að kveða skottuna niður þarf fjölskyldan alla leið norður á Galdrastrandir, á vit fortíðarinnar, og sú ferð verður ekki tíðindalaus. Hér er leitað fanga í frásögnum af íslenskum nornum og galdramönnum sem gengið hafa mann fram af manni síðan á brennuöld. Þá var kuklað í hverri vík á Ströndum. Skyldi það vera þannig ennþá.
Genres:
203 Pages