Málleysingjarnir

Pedro Gunnlaugur Garcia
3.83
77 ratings 16 reviews
Rúmenía 1989: Mihail er átta ára, einrænn rúmenskur piltur sem býr við þröngan kost í Búkarest þegar forsetahjónin eru tekin af lífi í þjóðfélagsbyltingu. Algjör ringulreið ríkir - sem hefur mikil áhrif á fjölskyldu og alls hans umhverfi. Ísland 2000: Unglingarnir Bergþóra og Finnur eru samrýnd systkini þótt ólík séu, hún luraleg og félagsfælin en hann á hraðri uppleið ,,í gráðugan faðm vaxandi klámfíknar." Heimili þeirra er í upplausn, foreldrarnir á barmi skilnaðar en leita leiða til að láta hlutina ganga upp. Í þessari viðamiklu skáldsögu segir frá ungu fólki í flóknum og um sumt fjandsamlegum heimi, en um leið er umbrotaskeiði lýst í fjörmikilli frásögn sem einkennist í senn af frjóu ímyndunarafli og sterkri tilfinningu fyrir sérkennum fólks og sögu. Málleysingjarnir, sem er fyrsta bók Pedros Gunnlaugs Garcia, er óvenjulegt skáldverk í íslenskum bókmenntun og má með sanni segja að hér kveði við nýjan tón. Sagan hlaut Nýræktarstyrk Miðstöðvar íslenskra bókmennta árið 2017 með afar lofsamlegri umsögn.
Genres:
436 Pages

Community Reviews:

5 star
27 (35%)
4 star
19 (25%)
3 star
23 (30%)
2 star
7 (9%)
1 star
1 (1%)

Readers also enjoyed

Other books by Pedro Gunnlaugur Garcia

Lists with this book