Ástin, Texas

Guðrún Eva Mínervudóttir
3.93
566 ratings 53 reviews
Ef líf mitt væri hugljúf bíómynd hefði ég sest í lótusstellingu fyrir framan grammófóninn við hvert tækifæri og svifið inn í heim klassískrar tónlistar og háleitra tilfinninga. Inn um dyrnar eitt kvöldið hefði gengið fínlegur og listrænn ungur maður, alger andstæða hnakka tískunnar sem reið röftum á þessum tíma, og fallið í stafi yfir afgreiðslustúlkunni sem var svona mikill listunnandi. Við hefðum orðið ástfangin og skapað okkur innihaldsríkt líf saman. Í staðinn lagðist ég undir sjoppueigandann. Í þessum tengdu sögum Guðrúnar Evu eru samskipti fólks á öllum aldri í forgrunni; mæðgna, feðgina, elskenda, vinnufélaga, hyskis og góðborgara. Persónugalleríið er fjölbreytt og litríkt; sálfræðineminn Hildigunnur, Agnar sjoppueigandi, Jósteinn múrari, trúboðarnir Austin og David frá Texas, Jóhanna sem dregst háskalega að Kára, móðurbróður bestu vinkonu sinnar, elskendurnir Sóti og Magga sem verja tíma sínum á knæpunni Dallas ... Af einstöku næmi og stílgáfu nær Guðrún Eva hér fágætri dýpt í mannlýsingum og bæði persónur og andrúmsloft sagnanna lifa með lesanda lengi á eftir. Guðrún Eva Mínervudóttir hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin árið 2011 fyrir Allt með kossi vekur og síðasta bók hennar, Skegg Raspútíns, var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna 2016, og vakti mikla athygli.
Genres: Short StoriesFiction
208 Pages

Community Reviews:

5 star
129 (23%)
4 star
284 (50%)
3 star
136 (24%)
2 star
16 (3%)
1 star
1 (0%)

Readers also enjoyed

Other books by Guðrún Eva Mínervudóttir

Lists with this book