Sonurinn

Michel Rostain
3.65
26 ratings 3 reviews
Þessi bók fjallar ekki um dauðann – þetta er bók um lífið! Þessi hrífandi skáld-ævisaga varð metsöubók í Frakklandi eftir að hún hreppti hin virtu Concourt-verðlaun fyrir fyrstu skáldsögu árið 2011 og hefur síðan verið þýdd á fjölda tungumála. Í bókinni er fjallað með frumlegum og snjöllum hætti um eitt hræðilegasta áfall sem hent getur foreldra – barnsmissi. Með einstakri hógværð og fáguðum næmleik leiðir Michael Rostain okkur inn í heim flókins sambands föður og sonar sem með hæðum sínum og lægðum raskar í engu skilyrðislausri ást foreldris til barns síns. Sonurinn hefur sterka tengingu við Ísland sem birtist lesandanum á áhrifamikinn hátt undir lok bókarinnar. Michel Rostain (f. 1942) er kunnur tónlistarleikhússtjóri og rithöfundur í Frakklandi. Hann býr í Arles. Friðrik Rafnsson íslenskaði. „Virðingarvert. mannlegt og hrífandi verk.“ – The Sunday Times „Sonurinn er bók uppfull af lífi, myrkum húmor og takmarkalausri ást. Hún hjálpar okkur að skilja hvernig við eigum að takast á við ofureflið og lifa með hinu ósegjanlega.“ – Jean-Marcel Bouguereau, ritstjóri Liberation „Bæði hrífandi og nístandi ... höfundurinn fetar einstigið milli þess að vera ljúfsár og væminn, milli biturleika og gleði, minninga og skáldskapar.“ – Times Literary Supplement
Genres:
174 Pages

Community Reviews:

5 star
5 (19%)
4 star
13 (50%)
3 star
4 (15%)
2 star
2 (8%)
1 star
2 (8%)

Readers also enjoyed

Other books by Michel Rostain

Lists with this book