Sigurverkið

Arnaldur Indriðason
3.76
733 ratings 110 reviews
Sigurverkið er söguleg skáldsaga sem gerist á sunnanverðum Vestfjörðum og í Kaupmannahöfn á 18. öld; margslungin og harmræn frásögn sem lýsir á áhrifaríkan hátt beiskum örlögum alþýðufólks og valdinu sem það er undirselt. Íslenskur úrsmiður situr í höll Danakonungs og gerir upp forna glæsiklukku. Kvöld eitt rekst sjálfur einvaldurinn, Kristján sjöundi, inn til hans; að nafninu til enn höfuð ríkisins en þykir ekki með öllum mjalla og hefur verið ýtt til hliðar af syni sínum og hirð. Þeir taka tal saman og svo fer að úrsmiðurinn rekur fyrir hátigninni dapurlega sögu föður síns og fóstru sem tekin voru af lífi að skipan fyrri konungs, föður Kristjáns. Arnaldur Indriðason hefur verið vinsælasti höfundur landsins í áratugi. Sigurverkið er tuttugasta og fimmta skáldsaga hans og hér fetar hann nýja slóð, því bókin er að hluta byggð á raunverulegum atburðum og persónum sem stíga hér fram á sviðið í afar trúverðugri og grípandi sögu.
Genres: Historical FictionThrillerRomanHistoricalFiction
315 Pages

Community Reviews:

5 star
145 (20%)
4 star
320 (44%)
3 star
224 (31%)
2 star
36 (5%)
1 star
8 (1%)

Readers also enjoyed

Other books by Arnaldur Indriðason

Lists with this book