Þung ský

Einar Kárason
3.98
114 ratings 19 reviews
Þung ský er kynngimögnuð saga um hrikalegt slys við ysta haf og örlagaríkan björgunarleiðangur. Einkennilegur drengur á afskekktum bæ er gagntekinn af öllu sem flýgur; fyrst fuglum loftsins, síðan stálfuglunum stóru sem sjást æ oftar yfir heimaslóðum hans. Á þungbúnum vordegi sér hann hvar stór farþegaflugvél birtist út úr skýjaþykkni og fólkið í gluggunum veifar. Síðar sama dag fréttist að vélin sé týnd. Bændur leggja af stað til leitar og drengurinn með. Í nálægum firði hefur sést brak utan í fjalli og leitarmenn halda upp bratta hlíðina, drengurinn fremstur. Það sem mætir skilningarvitum hans uppi á hjallabrún er ólýsanlegt. En þar logar eitt lítið lífsins ljós sem hann má ekki láta slökkna.
Genres: Fiction
120 Pages

Community Reviews:

5 star
28 (25%)
4 star
58 (51%)
3 star
26 (23%)
2 star
2 (2%)
1 star
0 (0%)

Readers also enjoyed

Other books by Einar Kárason

Lists with this book