Stormfuglar

Einar Kárason
3.66
684 ratings 89 reviews
Stormfuglar er áhrifamikil saga um örvæntingarfulla baráttu íslenskra sjómanna við miskunnarlaus náttúruöfl. Á miðjum vetri heldur síðutogarinn Máfurinn á karfaveiðar vestur undir Nýfundnalandi. Um borð eru þrjátíu og tveir menn. Þeir fylla skipið í mokveiði en í þann mund sem þeir búast til heimferðar brestur á aftakaveður; sjórinn er drápskaldur og togarinn hleður á sig ísingu í nístandi frosti og ofsaroki. Klakabrynjan er að sliga drekkhlaðið skipið, hver brotsjórinn af öðrum ríður yfir – og þarna úti á reginhafi eru mönnum allar bjargir bannaðar. Frá miðunum í kring berast neyðarköll annarra skipa sem eins er ástatt um. Baráttan er upp á líf og dauða. Einar Kárason treður hér nýjar slóðir í skáldskap sínum í mergjaðri og spennuþrunginni frásögn sem byggð er á sönnum atburðum.
Genres: FictionHistoricalHistorical FictionLiteratureAdventure
124 Pages

Community Reviews:

5 star
112 (16%)
4 star
297 (43%)
3 star
216 (32%)
2 star
47 (7%)
1 star
12 (2%)

Readers also enjoyed

Other books by Einar Kárason

Lists with this book

Þögn
Sér grefur gröf
Aska
isl
24 books1 voters