Land næturinnar

Vilborg Davíðsdóttir
4.14
72 ratings 10 reviews
Land næturinnar er áhrifarík og spennandi skáldsaga þar sem Vilborg Davíðsdóttir leiðir lesendur í sannkallaða ævintýraför á slóðir víkinga í Austur-Evrópu fyrir rúmum þúsund árum. Þorgerður Þorsteinsdóttir hefur lifað mikinn harm heima á Íslandi og heldur til Noregs þar sem örlögin senda hana í faðm skinnakaupmannsins Herjólfs. Saman halda þau til Garðaríkis, á fund væringja sem sigla suður Dnépurfljót og yfir Svartahaf með ambáttir og loðfeldi á markað í Miklagarði. Í landi næturinnar bíða þeirra launráð og lífsháski. Á augabragði er Þorgerður orðin ein meðal óvina og kemst að því að stundum kostar það meira hugrekki að lifa en deyja. Sagan hefst þar sem þar sem þræðinum sleppti í fyrri bókinni um Þorgerði, Undir Yggdrasil, en fyrir hana var Vilborg tilnefnd til Fjöruverðlaunanna 2021. Sögulegar skáldsögur hennar hafa notið mikilla vinsælda enda varpa þær nýju ljósi á líf og aðstæður kvenna í fortíðinni.
Genres:
304 Pages

Community Reviews:

5 star
24 (33%)
4 star
35 (49%)
3 star
12 (17%)
2 star
1 (1%)
1 star
0 (0%)

Readers also enjoyed

Other books by Vilborg Davíðsdóttir

Lists with this book